Sjóvá býður börnum Stofnfélaga í útileikhús Lottu

Eins og undanfarin ár býður Sjóvá öllum viðskiptavinum í STOFNI frítt fyrir 2 börn á útileiksýningar leikhópsins Lottu. Í sumar setur Lotta á svið eigin leikgerð á hinum gamalkunna verki Hans Klaufa þar sem fleiri skemmtilegar persónur úr hinum ýmsu ævintýrum birtast.
 
Sýningarnar verða um allt land í sumar. Eina sem þarf að gera er að mæta með börnin á sýningarstaðinn. Fyrir hvern fullorðinn einstakling þarf að greiða 1.500 krónur. Smellið hér til að sjá hvar og hvenær Hans er á ferðinni.
 
Hér fyrir neðan má sjá hvar sýningarnar verða settar upp í sumar. Þú getur líka fylgst með Hans Klaufa og vinum hennar á Fésbókinni.


Verkið skrifaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr ævintýraheiminum. Þar má til dæmis nefna Öskubusku og froskaprinsinn. Verkið segir frá því þegar Aron prins og aðstoðarmaður hans, Hans klaufi, koma heim úr löngu ferðalagi. Þegar heim kemur komast þeir að því að ekki er allt með feldu. Norn hefur komið þangað í fjarveru þeirra, lagt álög á kóngsríkið og svæft alla þegna þess og til að bæta gráu ofan á svart breytir hún Aroni prins í frosk. Nú eru góð ráð dýr og er það undir Hans klaufa komið að aflétta álögunum og bjarga kóngsríkinu. Verst bara hvað hann er mikill klaufi.

Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, taka teppi til að sitja á og myndavél en börnin fá að hitta karakterana úr sýningunni og þá er gaman að festa það á filmu.



Tryggingar

Veldu leið sem hentar þér:


Nágrannavarsla


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir