Reiðhjól

Reiðhjól

Hér fyrir neðan má sjá hvaða atriði skipta máli þegar kemur að notkun reiðhjóls. Við leggjum áherslu á að búnaðurinn sé í lagi, viðhald hjólsins sé fullnægjandi og að reglum sé fylgt.

Sumt af búnaði hjólsins er skylt að hafa, en annar er æskilegur til að auka öryggi hjólreiðamannsins.

Skyldubúnaður

  • Bremsur í lagi á fram og afturhjóli
  • Bjalla - ekki má nota annan hljóðmerkjabúnað
  • Ljós að framan - hvítt eða gult (Ekki þörf frá maí - júlí)
  • Rautt ljós að aftan (Ekki þörf frá maí - júlí)
  • Þrístrennd glitaugu - rautt að aftan og hvítt að framan
  • Keðjuhlíf - til varnar því að fatnaður festist í keðjunni
  • Teinaglit í teinum
  • Glitaugu á fótstigum
  • Lás

Leggja ætti áherslu á að nota einnig:

  • Hjólvara (bílafælu) - viðvörunarstöng með endurskini sem hægt er að beina út frá hjólinu
  • Standara

Annað sem hafa þarf í huga

Annað sem hafa þarf í huga
- Hjólið þarf að vera af réttri stærð - hjólreiðamaðurinn verður að geta numið fæti við jörð, er hann situr á sætinu
- Hæð stýris og hnakks þarf að vera hæfileg
- Nægjanlegt loft í dekkjum
- Keðjan hæfilega strekkt
- Handföng á stýri þurfa að vera föst

Viðhald hjólsins

Ef reiðhjólið okkar á að endast og vera fallegt, þurfum við að hugsa vel um það. Það helsta sem við þurfum að hugsa um er m.a.:
- smyrja slitfleti
- hafa hæfilegt loft í dekkjum
- láta skipta um dekk ef það er orðið slitið
- viðhalda ljósabúnaði
- fylgjast með bremsum
- herða lausar skrúfur og bolta
- þrífa og bóna hjólið

Tillitssemi og varúð

Allir vegfarendur verða að sýna tillitssemi og varúð svo umferðin gangi sem best og snurðulaust fyrir sig

Að fylgjast með annarri umferð

Að fylgjast með annarri umferð
Áður en hjólreiðamaður leggur af stað út í umferðina, verður hann að hlusta hvort bíll er að koma og horfa vel til allra átta og fylgjast áfram með henni svo lengi sem hann hjólar í umferð.

Hjólareiðahjálmur

Höfuðáverkar eru meðal algengustu áverka vegna slysa á hjóli. Skylt er að nota hjálm á hjóli upp að 15 ára aldri. Eldri reiðhjólamenn eru ekki síður í hættu að slasast ef þeir detta. Mikið öryggi er fólgið í notkun þeirra, því ættu allir að nota hjálm.

Merkjagjöf

Merkjagjöf
Hjólreiðamaður þarf að gefa merki um ætlun sína í umferðinni. Aðallega er um tvenns konar merkjagjöf. Annars vegar að rétta út hendi til vinstri eða hægri ef ætlunin er að beygja. Hins Ætlast er til að merkið sé gefið áður en beygt er og hafa báðar hendur á stýri meðan á beygju stendur eða stöðvað er, svo ekki sé hætta á að hjólreiðamaðurinn missi stjórn á hjólinu.

Hvar hjóla skal á vegi

Hjólreiðamenn eiga að hjóla sömu megin og bílar á götunni, hægra megin. Verið ekki of nærri kyrrstæðum bílum, því hugsanlega gæti hurð verið opnuð í veg fyrir hjólið. Það má eingöngu vera á vinstri vegarhelmingi ef hjólið er teymt.

Hópur hjólreiðamanna saman

Ef fleiri hjólreiðamenn eru saman, á ekki að hjóla samhliða, heldur í röð.

Gangstéttir og göngustígar

Gangstéttir og göngustígar
Æskilegt er að nota frekar gangstéttir og göngustíga en götur. Munum að gangandi vegfarendur hafa forgang. Látum vita af okkur í tíma með bjöllu þegar við komum aftan að gangandi fólki. Ef því bregður getum við átt von á að það fari í veg fyrir okkur. Þar sem gang- og hjólastígar eru sambyggðir, er oftast merkt hvoru megin hjólreiðamenn eiga að hjóla, fylgjum þeim merkingum!

Hverjir mega reiða?

Hverjir mega reiða?
Ef hjólreiðamaður er orðinn 15 ára og er vanur, má hann reiða barn yngra en 7 ára. En barnið verður að vera í sérstöku sæti og vera varið svo fætur fari ekki í teina.

Reiðhjólið skráð

Geymið stellnúmer hjólsins á aðgengilegum stað. Það er skráð á grind hjólsins. Á myndinni hér að neðan má sjá hvar algengt er að framleiðendur skrái stellnúmer hjólsins.

Að hjóla

Að hjóla
Umferðarlögin banna að hangið sé utan í öðru ökutæki hvorki bíl né hjóli. Einnig verður að hafa að minnsta kosti aðra hönd á stýri og báðar fætur á fótstigum. Þá má ekki flytja of stóra eða of þunga hluti á hjólinu.

Hlutverk foreldra

Hlutverk foreldra
Til að ná árangri í fræðslunni, er mikilvægt að foreldrar fái einnig vitneskju um þær reglur sem barnið á að fara eftir. Það hefur sýnt sig að foreldrar eru allt of oft ekki nógu meðvitaðir um þessi atriði sem hér hafa verið nefnd.  Einnig er mikilvægt að foreldrar sýni fordæmi og noti nauðsynlegan útbúnað og fylgi reglum þegar þeir hjóla sjálfir.

Val á hjálmi

Val á hjálmi

Hjálmar fást í mismunandi stærðum og gerðum, við val á slíkum ber að hafa eftirfarandi í huga:

  1. Hjálmurinn skal vera CE merktur, þar á einnig framleiðsludagur að sjást. Líftími hjálma er um 5 ár, vegna tæringa í plasti eru eldri hjálmar ekki taldir eins öruggir.
  2. Mælið ummál á höfði barnsins. Í hjálminum eru merkingar sem sýna lágmarks og hámarks ummál höfuðsins, veljið hjálm sem passar.
  3. Oftast nær fylgja svampar hjálmunum. Því er gott að fá hjálm sem er við efri mörkin og nota svamp til að hjálmurinn sitji þétt við höfuðið.
  4. Hjálmurinn á að sitja beint ofan á höfði, ekki of aftarlega eða of framarlega. Aftara bandið á að koma aftan við eyrað og fremra bandið frama við eyrað og mynda V utan um eyrað. Lesið leiðbeiningarnar vel sem fylgja hjálminum.
  5. Hökubandið á að vera nokkuð þétt, ekki lausara en að fingur komist á milli. Spennan á að vera til hliðar, ekki á sjálfri hökunni.
  6. Límmiðar eða tússlitir geta skemmt eiginleika hjálmsins.
  7. Hjálmurinn er ekki leikfang. Barnið á að taka hann af sér þegar það er ekki á reiðhjóli, línuskautum eða hlaupahjóli. Hann gæti skaðað barnið ef það fer að leika sér í leiktækjum þar sem hann getur krækst í.
  8. Verði hjálmurinn fyrir höggi hefur hann lokið hlutverki sínu og það ætti að henda honum.
  9. Fyrir börn þarf að stilla hjálminn reglulega. 
  10. Notið lambúshettu undir hjálminn en ekki húfur.
  11. Sumir hjálmar hafa græna spennu. Hún er sérstök öryggisspenna og er á hjálmum sem ætlaðir eru fyrir börn yngri en 6 ára. Hún á að losna ef barnið festir höfuðið einhvers staðar á milli.

Að stilla hjálm

Til þess að hjálmurinn geri sitt gagn þarf hann að vera rétt stilltur:


Tryggingar

Veldu leið sem hentar þér:

Tilkynna tjón




Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir