Forvarnahúsið

 
Heilt hús, tileinkað forvörnum
Forvarnahúsið er fræðslumiðstöð þar sem gestir fá meðvitund um þau lífsgæði sem felast í forvörnum á ýmsum sviðum. Í Forvarnahúsinu getur fólk prófað hvernig er að lenda í árekstri á 7 kílómetra hraða og hvernig það er að vera inni í bíl sem veltur. Upplifa kraftinn sem losnar úr læðingi við árekstur í árekstrarvog og finna hve auðveldlega áfengi hefur áhrif á sjónina með ölvunargleraugum. Í Forvarnahúsinu er margvíslegur búnaður sem tengist forvörnum á heimilum og í fyrirtækjum. Meðal annars er uppsett öruggt heimili, í samstarfi við IKEA, þar sem gestir geta komið og skoðað hvernig best er að haga öryggismálum á heimilinu. :Þá er góður vefur sem tengist hættunni af heitu vatni sem kallast Stillum hitann.

Staðsetning
Forvarnarhúsið er staðsett í Kringlunni 1, þar sem áður var prentsmiðja Morgunblaðsins. Inngangurinn í Forvarnahúsið snýr að Kringlunni, en Háskólinn í Reykjavík deilir húsnæði með Forvarnahúsinu.

Námskeið og kynningar
Í Forvarnahúsinu eru haldin námskeið og kynningar fyrir ökunema, grunnskólanemendur, fyrirtæki og foreldra. “Gestir á námskeiðum og kynningum hafa verið um 10 þúsund á ári og fer fjölgandi. Forvarnahúsið mun bjóða nemendum í elstu bekkjum grunnskóla að koma í heimsókn og þá verður áfram sérstök áhersla á ungt fólk sem er að byrja að læra á bíl”.  “Við finnum fyrir miklum áhuga hjá okkar viðskiptavinum á forvörnum og viljum koma til móts við hann. Forvarnahúsið starfar sjálfstætt og vinnur með hvaða samstarfsaðila sem er. Mörg fyrirtæki sýna forvörnum vaxandi áhuga og við viljum að Forvarnahúsið verði vettvangur ýmissa fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka í forvörnum.“ Þá er unnið að því að Forvarnahúsið verði með búnað sem er að hluta til færanlegur til að sinna forvarnastarfi úti á landi.

Forvarnir sjálfsagður þáttur í rekstri fyrirtækja
Viðhorf til forvarnastarfsemi hefur breyst mikið á undanförnum árum. Mörg þeirra fyrirtækja sem eru í viðskiptum við Sjóvá líta orðið á forvarnir sem eðlilegan þátt í starfsemi sinni. Þá er aukinn áhugi hjá almenningi fyrir forvörnum. “Við viljum sjá sjálfstætt forvarnahús vaxa og dafna. Til að forvarnarstarfsemin hérlendis fái traustan sess þá þurfum við að gera spennandi fyrirtæki úr forvörnum og hætta að líta á forvarnir sem góðgerðastarfsemi. Það er meðal annars markmiðið með Forvarnahúsinu”, segir forstjóri Sjóvá.

Starfsmenn
Starfsmenn Forvarnahússins eru Herdís Storgaard, sem sinnir aðallega slysavörnum barna og eldri borgara, Einar Guðmundsson sem aðallega vinnur að umferðaröryggismálum og Fjóla Guðjónsdóttir sem vinnur aðallega að öryggis- og forvörnum meðal fyrirtækja og sveitarfélaga.

Heimasíða Forvarnahússins

Forvarnahúsið er með sér vef, forvarnahusid.is.
 
Á honum má finna margvíslegan fróðleik um forvarnir.
 
Vefurinn skiptist í nokkra flokka:



Tryggingar

Veldu leið sem hentar þér:

Tilkynna tjón




Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir