Bílaleigur

BÍLALEIGUR
Bætur fyrir afnotamissi geta verið greiddar með bílaleigubíl á meðan viðgerð stendur. Hafðu samband við Sjóvá eða bílaleigu þegar bótaskylda liggur fyrir og Sjóvá sendir beiðni til bílaleigunnar vegna verkstæðistímans.

Á ég rétt á bílaleigubíl?

Á ég rétt á bílaleigubíl?
Það fer eftir því hvort þú ert í rétti eða hvernig kaskótryggingu þú ert með. Kynntu þér málið.

Höldur - Bílaleiga Akureyrar er samstarfsaðili Sjóvá

Höldur - Bílaleiga Akureyrar er samstarfsaðili Sjóvá
Frá og með 1. janúar 2009 verða allir bílaleigubílar sem Sjóvá greiðir fyrir vegna tjóna á vegum félagsins og verkstæði pantar í tengslum við tjónaviðgerð pantaðir hjá Höldi - Bílaleigu Akureyrar.
 
Höldur - Bílaleiga Akureyrar er stærsta bílaleiga landsins með 14 afgreiðslustaði og þjónustar viðskiptavini Sjóvá um allt land. Eigi tjónþoli rétt á bílaleigubíl hringir hann í síma 568 6915 eða 461 6000 og starfsfólk Hölds - Bílaleigu Akureyrar munu útvega honum bílaleigubíl skv. skilmálum tryggingarinnar.
 
Höldur - Bílaleiga Akureyrar hefur um árabil unnið náið með Forvarnahúsi Sjóvá og leitað markvisst leiða til að fækka óhöppum og auka öryggi viðskiptavina.

Sjóvá semur við Hertz bílaleigurnar

Sjóvá semur við Hertz bílaleigurnar
Frá og með 21. maí 2010 geta viðskiptavinir Sjóvá einnig leigt bíla af Hertz bílaleigunum þegar þeir eiga rétt á því vegna tjóns. Þess má einnig geta að í tengslum við samninginn er einnig gerður samningur um forvarnavinnu með það að markmiði að fækka tjónum og auka öryggi viðskiptavina bílaleigunnar.


Tryggingar

Veldu leið sem hentar þér:

Tilkynna tjón


Kynntu þér stjörnuflokkun verkstæða hjá Sjóvá


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir