Eigum örugg og ánægjuleg áramót

Eigum örugg og ánægjuleg áramót
Sjóvá leggur mikið upp úr forvörnum og vill brýna fyrir fólki að nota skotelda á réttan hátt. Mjög mikilvægt er að kynna sér leiðbeiningar sem fylgja skoteldum áður en byrjað er að skjóta upp.
Sýnum fyrirhyggju og verum örugg um áramótin.

Með hvelli inn í nýja árið

Með hvelli inn í nýja árið

„Gamlárskvöld er uppáhaldskvöldið mitt,  það er alltaf gaman að skjóta upp skoteldum, enda nauðsynlegt að finna strákinn í sér öðru hvoru, segir Þorsteinn Sigurðsson íbúi í Ártúnsholtinu.  „Eins og venjulega var ég búinn að kaupa skotelda og þar af nokkrar stærri rakettur“.

Fylgjumst vel með kertunum inni og úti

Fylgjumst vel með kertunum inni og úti
Hér er einfaldur listi til að tryggja öryggi kerta á heimilinu:
  • Er ekki alltaf einhver íherberginu þegar kerti loga?
  • Er kertið á stöðugu undirlagi?
  • Er undirlagið hita- og brunaþolið?
  • Þolir ílátið eða stjakinn örugglega hitann?
  • Er kertakveikurinn styttri en 20 mm?
  • Er stillt loft þar sem kertið er? (Enginn dragsúgur)
  • Eru gardínur í öruggri fjarlægð?
  • Er kertið ekki í öruggri fjarlægð frá hillum eða skáp að ofan?
  • Er sprittkertið í íláti sem verndar borð eða dúk fyrir hitanum?
  • Eru kerti sem standa nálægt hvert öðru í sömu hæð?
  • Er ekki slökkt á öllum kertum þegar farið er úr húsi?
  • Eru borðar, servíettur eða skreytingar á öruggri fjarlægð frá kertinu?
  • Jólaljósin inni og úti

    Jólaljósin inni og úti
    Hluti af undirbúningi jólanna er að athuga hvort þau ljós sem nota á séu í lagi. Óvandaður, skemmdur eða rangt notaður ljósabúnaður getur valdið bruna og slysum.
    Engin jólaljós eru svo örugg að hægt sé að útiloka íkveikju af þeirra völdum.

    Eldhúsið, eldvarnir og viðbrögð ef eldur kemur upp

    Eldhúsið, eldvarnir og viðbrögð ef eldur kemur upp
    Á öllum heimilum eiga að vera reykskynjarar, eldvarnateppi og handslökkvitæki. Fáið leiðbeiningar hjá fagmönnum um rétta staðsetningu.
    Hafið reykskynjara í öllum herbergjum og prófið þá reglulega. Góð regla er að skipta um rafhlöður í honum a.m.k. einu sinni á ári.
     
    Eldvarnateppi á ekki að vera nálægt eldavélinni - heldur við útgöngudyr þar sem auðvelt er að ná til þess. Kynnið ykkur rétta notkun þess.
    Handslökkvitæki fást í ýmsum gerðum en mælt er með því að hafa léttvatnstæki á heimilum og í stigagöngum fjölbýlishúsa. Lesið vel leiðbeiningar um notkun og uppsetningu og leitið ráða um viðhald tækjanna.

    Örugg leikföng í jólapakkana

    Örugg leikföng í jólapakkana
    Þau leikföng sem eru til sölu hér á landi eiga að vera örugg og uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til þeirra varðandi lögun, merkingar og efnisinnihald. Ekki er hægt að vera fullviss um að svo sé.  Gallar geta  komið fram í leikfangi eða hættulegt leikfang uppgötvast ekki fyrr en það er komið í hendur neytenda.

    "Lítið sætt kerti lagði íbúðina mína í rúst"

    Þegar 12 ára drengur kveikti á litlu kerti í stjakanum sem hann útbjó í skólanum, óraði hann ekki fyrir því að þetta litla kerti ætti eftir að leggja heimili hans og móður hans í rúst. Hann fór fram að horfa á sjónvarpið með mömmu sinni og lokaði dyrunum án þess að slökkva á kertinu. Kertið logaði friðsamlega á skrifborði drengsins í þríbýlishúsi við Hellisgerði á Akureyri.

    Jólagjafir freista þjófa

    Innbrot í bíla hafa stóraukist síðustu mánuði. Í jólamánuðnum eykst hættan á slíku enda erum ið meira á ferðinni og geymum oft verðmæti í bílunum s.s. innkaupapoka og farangur. Þjófar bera sig að eins og við þegar við skoðum í glugga og metum hvað okkur langar í. Besta leiðin til þess að verjast innbrotum í bíla er því að læsa alltaf bílnum og skilja aldrei verðmæti í bílnum sem blasa við inn um bílglugga. Settu alltaf veski eða fartölvur undir sætin í bílnum og innkaupapokana í skottið eða þar sem þeir sjást minnst. Það getur verið sniðugt að hafa dökkt teppi í bílnum til þess að breiða yfir verðmæti sem eru vel sýnileg s.s. farangur eða innkaupapoka. Passaðu þig á að breiða vel yfir verðmætin svo þau lokki ekki. Hanskahólfið er ekki góður staður fyrir verðmæti. Það er fyrsti staðurinn sem þjófurinn leitar eftir verðmætum á. Margir skilja bíla eftir þegar farið er í burtu í lengri tíma yfir jólin. Farðu yfir það hvort allar rúður og sóllúga bílsins sé ekki tryggilega lokuð, börn og farþegar gætu hafa opnað glugga án þess að ökumaður taki eftir því. Þegar þú leggur bílnum á bílastæði þá er ekki endilega best að velja stæðið út í horni eða innst í botnlanga. Þar er oft næði fyrir þjófa að aðhafast. Veldu frekar svæði nærri umferð. Götunni heima hjá þér.

    Milljónatjón í fyrirtækjum

    Íslensk fyrirtæki hafa orðið fyrir milljónatjóni vegna kertabruna á undanförnum árum. Tjónsupphæðirnar segja þó ekki alla söguna þar sem óþægindi fyrirtækja vegna bruna, töpuð gögn eða vinna verða seint metin til fjár. Tölur sýna einnig að fjöldi kertabruna hjá fyrirtækjum er mjög mismunandi milli ára. Reynslan sýnir að flest kertatjón verða vegna þess að við sjálf gleymum að slökkva á þeim eða að staðsetning þeirra er með þeim hætti að það kviknar í skreytingu, borði eða gardínu. Hér að neðan er að finna góð ráð til fyrirtækja sem vert er að hafa í huga til þess að tryggja að lifandi ljós breytist ekki í lifandi hættu.


    Tryggingar

    Veldu leið sem hentar þér:

    Tilkynna tjón


    Sæktu handbók um nágrannavörslu
    Sjóvá er einn af aðalbakhjörlum Landsbjargar


    Breyta um leturstærð


    Leit



    Flýtileiðir