Ferðatryggingar

Það er hægt að tryggja sig með ýmsu móti á ferðalögum. Hvaða tryggingar henta hverju ferðalagi getur hins vegar verið misjafnt og mikilvægt er að kynna sér gaumgæfilega hvað hentar því ferðalagi sem þú hyggur á. Ferðatryggingar er að finna í:
-
Valkvæðum ferðatryggingum í Fjölskylduvernd
-
Kortatryggingum
-
Sérstökum ferðatryggingum
-
Sjúkratryggingum
Rétt er að huga að tryggingum um leið og farmiði er keyptur.
Ferðasjúkra- og ferðarofstrygging
Ferðasjúkra- og ferðarofstrygging greiðir kostnað vegna:
-
slyss, sjúkdóms eða fráfalls vátryggðs á ferðalagi, endurgreiðir orlofsferð í vissum tilvikum gegn framvísun læknisvottorðs auk kostnaðar sem vátryggður þarf að greiða fyrir utanlandsferð sína.
-
viðbótarútgjalda ef vátryggður neyðist til að rjúfa utanlandsdvöl sína vegna, andláts, alvarlegs slyss, skyndilegra og alvarlegra veikinda náinna skyldmenna, verulegs eignatjóns á heimili eða í einkafyrirtæki, sem gerir nærveru hans nauðsynlega.
-
ferða- og dvalarkostnað náins ættingja sem kvaddur er til dvalarstaðar hins tryggða vegna slyss, alvarlegra veikinda eða andláts vátryggðs á ferð sinni.
Ferðaslysatrygging
Greiðir bætur vegna slyss
Ferðaslysatrygging greiðir örorkubætur vegna slyss sem vátryggður verður fyrir á ferðalagi. Einnig er hægt að bæta við dánarbótum og dagpeningum.
Ferðaslysatrygging greiðir örorkubætur vegna slyss sem vátryggður verður fyrir á ferðalagi. Einnig er hægt að bæta við dánarbótum og dagpeningum.
Farangurstrygging
Bætir skemmdir á farangri
Farangurstrygging bætir skemmdir sem verða á farangri vátryggðs á ferðalagi erlendis. Bætt er tjón sem rekja má til bruna, þjófnaðar, skemmdarverka eða flutningsslyss.
Farangurstrygging bætir skemmdir sem verða á farangri vátryggðs á ferðalagi erlendis. Bætt er tjón sem rekja má til bruna, þjófnaðar, skemmdarverka eða flutningsslyss.
Ákveðnar hámarksbætur fást fyrir hvern hlut þannig að ef ferðast er með dýrmæta hluti er mönnum bent á að vátryggja þá sérstaklega.
Ferðakostnaðar- og forfallatrygging
7 dögum fyrir brottför
Þessa vátryggingu verður að kaupa sama dag og ferðin er greidd a.m.k. 7 dagar fyrir brottför.
Þessa vátryggingu verður að kaupa sama dag og ferðin er greidd a.m.k. 7 dagar fyrir brottför.
Greiðir það sem upp á vantar frá ferðaskrifstofu / flugfélagi
Ferðakostnaðar- og forfallatrygging bætir þann hluta fargjalds sem vátryggður hefur greitt en fæst ekki endurgreiddur hjá ferðaskrifstofu eða flugfélagi ef hinn vátryggði kemst ekki í fyrirhugaða ferð vegna dauðsfalls, slyss eða skyndilegs alvarlegs sjúkdóms hans, nánustu fjölskyldu eða ættingja - eða vegna verulegs eignatjóns á heimili hans eða einkafyrirtæki.

Hvar ertu tryggður með þínu kreditkorti?
Hér fyrir neðan geta korthafar séð hvaða kreditkort Sjóvá tryggir. Smelltu hér til að sjá yfirlit yfir öll kreditkort.
| Útgáfuaðili kreditkorts |
Sjóvá |
TM |
VÍS |
| Íslandsbanki (VISA kreditkort) | x | ![]() |
![]() |
| Íslandsbanki (MasterCard kreditkort) | x | ![]() |
![]() |
| Kreditkort hf (MasterCard kreditkort) | x | ![]() |
![]() |
| Kreditkort hf (American Express)) | x | ![]() |
![]() |
| GottKort | x | ![]() |
![]() |
Evrópska sjúkratryggingakortið
Athugið að hafa evrópska sjúkratryggingakortið meðferðis á ferðalagi um Evrópu.Kortið gildir eingöngu hjá þjónustuaðilum innan hins opinbera sjúkratryggingakerfis þeirra landa sem eru aðilar að EES samningnum (EEA area).

Nánar um kortið á vef Tryggingastofnunar.