Flutningur

Flutningur
Vörur sem fluttar eru til og frá landinu fara um langan veg, oft heimshorna á milli.

Til að öryggið verði eins og best verður á kosið þarf tvennt að fara saman:
  • Nákvæmt skipulag á framvindu flutnings
  • Tryggilegur frágangur seljanda og flytjanda á vörunni

En þrátt fyrir vandaðan undirbúning og góðan frágang er
alltaf einhver áhætta til staðar og hana verður að taka með í reikninginn.

Vátryggingamál vörusendinga

  • Eitt af því sem aðilar þurfa að koma sér saman um í upphafi er hvenær áhættan á því að varan verði fyrir tjóni í flutningum færist frá seljanda til kaupanda. Getur það samkomulag verið með ýmsum hætti.
  • Engum samningum má ljúka án þess að tryggingamál vörusendingarinnar séu frágengin.

Þjónusta tengd flutningstryggingum

Inn- og útflytjendum er það afar mikilvægt að eiga greiðan aðgang að lipurri sérfræðiþjónustu á sviði trygginga hvar sem er í heiminum. Sjóvá hefur samið við sérfræðinga á þessu sviði í fjölmörgum löndum um að þeir komi fram fyrir hönd félagsins og veiti faglega aðstoð.

Iðgjöld flutningstrygginga eru lág og þýðingarmikið er fyrir íslenska hagsmunaaðila, sem stunda inn- og útflutningsverslun, og skjólstæðinga þeirra að hafa sem greiðastan aðgang að tjónsuppgjöri. Það gerist best með því að kaupa vátryggingarverndina hér á landi.

Takmörkun ábyrgðar farmflytjanda

Ábyrgð farmflytjanda er háð takmörkunum og er undir vissum kringumstæðum ekki fyrir hendi. Á það jafnt við um farmflytjendur á sjó, landi og í lofti. Farmflytjendur á sjó eru t.d. ekki ábyrgir fyrir tjóni af völdum óveðurs og brotsjóa. Sé farmur hins vegar vátryggður bætir Sjóvá tjónið í samræmi við þá vátryggingarvernd sem um var samið.


Tryggingar

Veldu leið sem hentar þér:

Tilkynna tjón




Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir