Vindakort

Forvarnahúsið hefur í samstarfi við veðurfræðing kortlagt vindasama staði sem hafa reynst eftirvögnum og húsbílum erfiðir. Aftan á bæklingnum er vindakort og hvetjum við þig til að hafa það með í ferðalaginu. Þú getur nálgast bæklinginn hér til hliðar. Við hvetjum alla sem ætla að ferðast með kerrur, hestakerrrur, ferðavagna s.s. hjólhýsi, tjaldvagna og fellihýsi eða hvers kyns eftirvagna til að kynna sér vel aðstæður áður en lagt er af stað.
 
Á kortinu hér að neðan eru upplýsingar um vindasömustu staðina en við höfum líka tekið saman ítarlegt skjal um varasama staði á landinu. (Sækja skjal - PDF 67KB)
 
Nánari upplýsingar um færð og veðurfar veita Vegagerðin og Veðurstofa Íslands á vefsvæðum sínum og við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vel upplýsingar hjá þessum aðilum áður en lagt er af stað í ferðalag.

Eftirfarandi staðir geta verið varasamir í hvössum vindi

Fáið leiðbeiningar fyrir vegfarendur með því að færa músarbendil yfir helstu vindhviðustaði á Íslandi.

Veðurupplýsingar koma beint frá sjálfvirkum veðurstöðvum Vegagerðarinnar. Sjóvá ábyrgist ekki að þau gögn séu ætíð aðgengileg og uppfærð. Sjóvá ber enga ábyrgð fyrir skaða sem hljótast kann af völdum skorts á upplýsingum eða rangra upplýsinga hér á vindakorti á sjova.is.

Nánari upplýsingar um færð og veðurfar veita Vegagerðin og Veðurstofa Íslands á vefsvæðum sínum.

Hámarkshraði

Hámarkshraði
Hámarkshraði með eftirvagn er 80 km/klst. Ef eftirvagn skyggir á útsýni bílspegla þarf að setja upp spegla með framlengingu. Einnig er æskilegt að koma fyrir gasskynjara í fellihýsum, hjólhýsum og húsbílum.

Nýjar reglur um eftirvagna

Nýjar reglur um eftirvagna
Nýjar reglur skylda eigendur eftirvagna til að láta skoða þá reglulega. Eftirvagnar skráðir árið 2005 eða fyrr þurfa að fara í skoðun fyrir 1. ágúst 2009 og annað hvert ár eftir það.

Viðbrögð við miklum vindi

Viðbrögð við miklum vindi
Ef þú lendir í miklum vindi skaltu snúa bílnum upp í vindinn og stoppa. Vindur sem kemur á hlið er  varasamastur, hann getur feykt til vagni eða bíl. Haltu til í bílnum þar til lægir. Upplýsingar frá Vegagerðinni um veður eru í síma 1779, allan sólahringinn.

Viðvörun vegna hvassviðris

Búist er við norðaustan hvassviðri í kvöld og fram á morgundaginn, einkum við suðurströndina. Þar geta vindhviður náð allt að 40 m/s.
 
Ferðalöngum er bent að fylgjast með veðurfréttum og kynna sér spár á vef veðurstofunnar.  Einnig er hægt að kynna sér vindasama staði á vindakorti Sjóvá og í yfirliti yfir vindasama staði.



Vagnakaskó


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir