Ökutæki

Sjóvá býður ökutækjatryggingar fyrir öll skrásetningarskyld ökutæki, t.d. fólksbíla, jeppa, vörubíla, bifhjól, fjórhjól eða vélsleða svo dæmi séu tekin.
 
Ráðgjafar Sjóvá eru til þjónustu reiðubúnir og veita ráðgjöf um vátryggingarþörfina hjá þínu fyrirtæki. Hafðu samband í síma 440 2000 eða á fyrirtæki@sjova.is og við tökum vel á móti þér.

Vátryggingar


Ábyrgðartrygging
  • lögboðin vátrygging samkvæmt umferðarlögum
  • bætir fjárhagslegt tjón þriðja aðila sem notkun ökutækis veldur, bæði eignatjón og líkamstjón

Slysatrygging ökumanns og eiganda
  • lögboðin vátrygging
  • gildir fyrir ökumann og eiganda ef hann er farþegi í eigin ökutæki og greiðir bætur ef hann slasast. Aðrir farþegar en eigandi eru hins vegar vátryggðir í ábyrgðartryggingunni.

Bílrúðutrygging
  • bætir brot á bílrúðu bifreiðar ásamt ísetningarkostnaði
  • eigin áhætta er 15% af heildarupphæð reiknings
  • sé gert við bílrúðu þarf ekki að greiða eigin áhættu
  • vátryggingin er ekki lögboðin

Kaskótrygging
  • greiðir meðal annars tjón af völdum:
    • áreksturs
    • eldsvoða
    • veltu
    • snjóflóðs
    • óveðurs
    • þjófnaðar
    • skemmdarverka o.fl.

Einfalt mál

Ráðgjafar Sjóvá eru til þjónustu reiðubúnir og veita ráðgjöf um vátryggingaþörfina hjá þínu fyrirtæki. Hafðu samband í síma 440 2000, á fyrirtaeki@sjova.is eða hér á vefnum. Við tökum vel á móti þér.


Tryggingar

Veldu leið sem hentar þér:

Tilkynna tjón




Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir