Starfsemi Sjóvá

Starfsemi Sjóvá
Félag í forystu

Stjórn Sjóvá

Í stjórn Sjóvá eru:

  • Heimir V. Haraldsson stjórnarformaður
  • Erna Gísladóttir
  • Kristján Ragnarsson
  • Þórhildur Ólöf Helgadóttir
  • Þórólfur Jónsson

Forstjóri Sjóvá er Lárus Ásgeirsson
Staðgengill forstjóra er Helgi Bjarnason.

Undir forstjóra heyra eftirfarandi svið:

Sala og ráðgjöf
Þjónusta, ráðgjöf og sala á sviði líf- og skaðatrygginga til einstaklinga og fyrirtækja er meginstarfsemi Sölu- og ráðgjafar. Útibú og umboðsnet félagsins tilheyrir einnig sviðinu auk netviðskipta. Öll afkomustýring, verðlagning og vöruþróun er einnig á ábyrgð sviðsins. Framkvæmdastjóri sviðsins er Sveinn Segatta.

Fjármálasvið
Fjármálasvið ber ábyrgð á innheimtum og kostnaðarbókhaldi, umsjón fasteigna, uppgjörum og áætlun.
Framkvæmdastjóri sviðsins er Ólafur Njáll Sigurðsson.

Tjónasvið
Uppgjör tjóna, bótaákvarðanir og tjónaskoðun tilheyrir tjónasviði.
Framkvæmdastjóri sviðsins er Auður Daníelsdóttir.
 
Áhætta og greining
Endurtryggingar, tjónaskuld, áhættumat, afkomugreining, greiningar og tölfræði.
Framkvæmdastjóri: Helgi Bjarnason.
 
Skrifstofa forstjóra
Kynningarmál,  mannauður, upplýsingamál, gæðamál, fjárfestingar og ýmis lögfræðimál falla undir skrifstofu forstjóra

Dótturfélag:
Sjóvá-Almennar líftryggingar
Helgi Bjarnason er framkvæmdastjóri Sjóvá-Almennra líftrygginga.

Skipurit

Hlutverk, framtíðarsýn og gildi

Hlutverk, framtíðarsýn og gildi
Hlutverk Sjóvá
Hlutverk Sjóvá er að tryggja verðmætin í lífi fólks. Með því vill félagið taka þátt í að skapa og treysta þau lífsgæði sem fólk sækist eftir.

Framtíðarsýn
Sjóvá er og verður þjónustufyrirtæki í fremstu röð og sýnir stöðugt frumkvæði í því hvernig best er að tryggja verðmætin í lífi fólks, hvort sem það er á Íslandi eða erlendis.

Meginmarkmið og stefna
  • Þjónustan sé framúrskarandi
  • Starfsemi Sjóvá sé einföld og hagkvæm
  • Viðmót starfsmanna einkennist af frumkvæði og krafti
  • Sjóvá starfi á alþjóðavettvangi

Gildi

  • Forysta
  • Einfaldleiki




Tryggingar

Veldu leið sem hentar þér:

Tilkynna tjón




Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir